Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Vefir

Bandalag íslenskra græðara

Bowen tækni

Bowen tækni á Íslandi - Margeir Sigurðarson kennari og umboðsmaður
ECBS - European College of Bowen Studies
The Gentle Power of Bowen - upplýsingar, rannsóknir, greinar, árangurssögur og fleira
The BowenDirectory.com - upplýsingar, greinar, saga Tom Bowen og fleira
Paula Esson - Bowen kennari og íþróttafræðingur, sérhæfð í íþróttameiðslum

Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

Cranio - Félag höfuðbeina og spjaldhryggsjafnara á Íslandi
College of Cranio-Sacral Therapy í London

Thought Field Therapy

Callahan Techniques

Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005