Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Um mig

Ég hóf starfsemi sem höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari á Akureyri í byrjun júlí 2003 eftir að hafa lokið námi í Cranio-skólanum. Til þess að geta boðið skjólstæðingum mínum betri þjónustu og til þess að geta valið meðferð sem hentar hverju sinni hóf ég nám í notkun Bowen tækni með því að sækja námskeið hjá Margeiri Sigurðarsyni.

  • Vorið 2005 hóf ég að kynna mér TFT-meðferð (Thought Field Therapy) og sótti námskeið í þeirri aðferð í Chicago í september 2005 eftir að hafa farið í gegnum yfirgripsmikið sjálfsnám með aðstoð bóka, diska og myndbanda sumarið 2005. Ég er eini Íslendingurinn sem sótt hefur nám í TFT og fengið skírteini og leyfi frá Callahan Techniques til að beita meðferðinni.

  • Ég hóf ég nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri haustið 2003 til þess að öðlast enn betri innsýn í meðhöndlun líkamans og samskipti við skjólstæðinga mína og stunda þar nám nú jafnframt störfum mínum við að hjálpa fólki með TFT, Bowen tækni eða höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun að vopni.

  • Ég hef lokið námi í Cranio-skólanum, sem er skilyrði fyrir inngöngu í Cranio – félag höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnara á Íslandi. Námið er yfirgripsmikið og þeir nemendur sem ljúka námi eru færir um að veita árangursríka meðferð við margs konar kvillum. Námið er í sex hlutum og tekur samtals tvö ár þar sem skiptast á krefjandi námskeið og reglulegar æfingar og heimaverkefni. Nánari upplýsingar um námið er að finna hér á vefnum. Jafnframt námi í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun  tók ég að mér að þýða námsefnið sem  Thomas Attlee, stofnandi og skólastjóri College of Cranio-Sacral Therapy (CCST) í London, hefur samið og notar við kennsluna. Ég sótti fyrsta námskeiðið af sex í höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun í maí 2001 og það sjötta og síðasta í júní 2003.

  • Nám í Bowen tækni skiptist í fimm hluta og hef ég lokið því námi með verklegu og skriflegu prófi undir handleiðslu Margeirs Sigurðarsonar og Julians Baker, skólastjóra European College of Bowen Studies (ECBS) í London, en nánari upplýsingar um námið er að finna á öðrum stað hér á þessum vef og á öðrum vefjum sem vísað er til. Í apríl 2005 tók ég fyrsta námskeiðið af þremur þar sem ítarlega er fjallað um notkun Bowen tækninnar gegn íþróttameiðslum af ýmsu tagi. Kennari á því námskeiði var Paula Esson frá Englandi.

Ég er fædd 1963, bý og starfa á Akureyri, er í sambúð og á fjögur börn. Ég hef mikinn áhuga á andlegum og dulrænum málefnum, sérstaklega í tengslum við það að bæta líf og heilsu, bæði hjá sjálfri mér og öðrum.

Fara efst á síðu...


Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005