Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Rannsóknir og reynslusögur

Hér að neðan er að finna upplýsingar um ýmsar rannsóknir á virkni Bowen tækninnar og reynslusögur af notkun hennar.

Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir

Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.


Reynsla og rannsóknir hafa sýnt að meðferð með Bowen tækni getur gagnast vel gegn margs konar kvillum og sjúkdómum. Hér að neðan eru tiltekin nokkur dæmi um fólk sem hefur fengið bata eftir Bowen meðferð. Flestar þessara frásagna eru fengnar af vefsíðunni www.paulaessonbowen.com. Paula Esson er Bowen tæknir í Bretlandi og kennir við E.C.B.S., European College of Bowen Studies í London.

Á vefsíðunni www.boweninfo.com er yfirlit um nokkrar rannsóknir á fólki með tiltekna kvilla eða sjúkdóma sem farið hefur í gegnum meðferð með Bowen tækni. Hér er einnig birt lausleg þýðing á nokkrum þeirra.

Rannsóknum og reynslusögum hefur hér verið raðað upp og þær flokkaðar gróflega eftir því vandamáli sem við er að etja. Athugið þó að slík flokkun getur aldrei orðið mjög nákvæm vegna þess að hver og einn skjólstæðingur er einstakur og margir mismunandi kvillar eða sjúkdómar geta hrjáð hvern og einn. Af þeirri ástæðu getur sami einstaklingur eða sama sagan komið fyrir á tveimur stöðum þar sem viðkomandi fellur undir tvo eða fleiri af þeim flokkum sem hér hafa verið búnir til.

Athugið að hér er ekki tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.


Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005