Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir

Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.


  • Dr. Bernie Carter í Metropolitan University of Manchester rannsakaði fólk með frosna öxl sem fengið hafði Bowen meðferð. Niðurstöðurnar sýndu að 77% rannsóknarhópsins höfðu upplifað jákvæðar breytingar eftir meðferðina.  Julian Baker og Helen Kinnear hjá European college of Bowen Studies í Bretlandi gerðu einnig rannsókn á fólki sem átti við langvarandi axlaverki og stirðleika að etja. Niðurstöðurnar sýndu að Bowen meðferðin bætti verulega hreyfanleika axlarinnar og dró úr verkjum.

  • Sjá á: www.boweninfo.com


Frosin öxl og vefjagigt – 28 ára kona – fjórir meðferðartímar

  • Þegar Shelli var tvítug átti hún við erfið líkamleg vandamál að stríða, var sífellt þreytt og mjög slæm í hægri öxlinni þar sem hún fann fyrir verulegum sársauka og minnkaðri hreyfigetu. Henni var meðal annars sagt að hún væri með frosna öxl og vefjagigt. Á næstu sjö árum prófaði hún ýmislegt í tilraunum sínum til að ná bata. Hún fékk kortísón sprautur (cortisone), sterk verkjalyf, blómadropameðferð, nudd, osteopatiumeðferð, viðbragðameðferð (reflexology), höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun og sjúkraþjálfun á spítala. Ekkert dugði. Það var ekki fyrr en hún fór í meðferð hjá Paulu Esson í júní 1999 sem eitthvað fór að gerast. Hún kom í fjóra meðferðartíma og vandinn var leystur, hreyfigetan var aftur eðlileg, verkurinn horfinn og Shelli gat sofið eðlilega. Shelli var svo ánægð með árangurinn að hún fór sjálf út í að læra um þessa meðferð og fá þjálfun sem Bowen tæknir hjá E.C.B.S. (European College of Bowen Studies).

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com.


Frosin öxl 48 ára kona – þrír meðferðartímar

  • Susan var greind með frosna öxl. Að ráði læknis hennar fékk hún margar kortísón  (cortisone) sprautur. Vandamálið lagaðist eitthvað en versnaði síðan aftur. Susan stundaði tennis af ákafa varð að hætta af skiljanlegum ástæðum. Að tveimur árum liðnum fór hún til sérfræðings sem þá greindi hana með belgbólgu (bursitis). Sérfræðingurinn tjáði henni að hún þyrfti á sprautum að halda það sem eftir væri ævinnar til að halda vandamálinu í skefjum. Þegar hér var komið sögu ákvað Susan að prófa Bowen meðferð – hún var niðurdregin og fannst sem læknarnir hennar hefðu afskrifað bata hennar þar sem þeir fundu ekki önnur ráð en að sprauta hana með kortísón. Með Bowen meðferðinni tókst að losa um öxl hennar og hún hefur verið laus við vandamálið upp frá því – og leikur tennis af mikilli ánægju.

  • Sjá á www.paulaessonbowen.com


Golfolnbogi, frosin öxl og mígreni – 48 ára kona – þrír meðferðartímar

  • Kona, 48 ára gömul, þjáðist af verkjum í hálsi, mígreni (allt að tvisvar sinnum í viku) og stirðleika í hné. Hún hafði áður verið með frosna öxl sem síðan hafði þróast yfir í golfolnboga og henni hafði verið ráðlagt að fara í svokallaða viðbragðameðferð (reflexology). Í fyrsta meðferðartímanum í Bowen fann hún hvernig teygðist á hálsinum og losna tók um olnbogann. Eftir fjóra meðferðartíma hafði hún endurheimt eðlilega orku, öxlin var ekki lengur til vandræða, mígreniköstin voru hætt að koma og hnén voru betri. Enn voru einhver eymsli í olnboganum – en ári síðar leið henni mjög vel.

  • Sjá á www.paulaessonbowen.com


Háls- og axlameiðsli – 43 ára kona – þrír meðferðartímar

  • “Ég fór nýlega í Bowen meðferð vegna þrálátra og sársaukafullra háls- og axlaáverka sem höfðu verið til staðar í meira en þrjú ár. Þó ég væri mjög efins í fyrstu – með það í huga að ótrúlegt væri að svona lítil og létt snerting gæti skipt svo miklu máli þegar allar aðrar meðferðir sem heimilislæknirinn minn hafði mælt með höfðu aðeins dregið lítillega úr einkennum í stuttan tíma. Ég var furðu lostin yfir þeim ótrúlega árangri sem náðist, jafnvel aðeins eftir fyrstu meðferðina.”

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Athugið að hér er ekki tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.

Fara efst á síðu..

Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005