Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir

Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.


Fyrstu niðurstöður rannsóknar sem stendur yfir á heilalömun benda til bættrar talgetu, meiri rósemi, betri einbeitingar og skilnings, betri stjórnar á höfði og betra jafnvægis. Sjá á: www.boweninfo.com

  • Ósjálfráða taugakerfið (ANS) og hjartsláttarhraði - Frumniðurstöður í rannsókn sem gerð var af Jo Anne Whitaker, þar sem gerðar voru mælingar á breytileika mynstra í hjartslætti fyrir og eftir Bowen meðferð, sýndu að meðferðin hefur áhrif á ósjálfráða taugakerfið (ANS). Meðferðin kom á betra jafnvægi ósjálfráða taugakerfisins. Rannsóknarhópurinn samanstóð af þátttakendum með alls kyns gigtarvandamál. Sjá á: www.boweninfo.com

  • Í grein í skoska tímaritinu N2N – eða Nurse to nurse, 12. júní 2001, eftir Janie Godfrey eru meðal annars tiltekin nokkur dæmi um árangur með Bowen tækni. Hún bendir á að hliðarverkanir, kostnaður, óþægindi og fleira neikvætt við þær meðferðir sem í boði eru gegn verkjum hafi leitt til þess að margir leiti aðstoðar í viðbótarmeðferðum. Eitt dæmið sem hún tiltekur er af konu á fimmtugsaldri sem hafði verið hölt í fjóra mánuði og verið greind með interdigital Neuritis (Morton´s Foot Pain) – sem er einhvers konar taugabólga í fæti. Hún var send til sérfræðings sem áleit að skurðaðgerð gæti verið lausnin. Hún reyndist hins vegar ekki nauðsynleg því eftir einn meðferðartíma með Bowen tækni hvarf verkurinn. Í greininni eru tiltekin mörg fleiri dæmi um ýmiss konar vandamál sem Bowen tæknin hefur gagnast vel gegn. Sjá á: www.boweninfo.com


Athugið að hér er ekki tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.

Fara efst á síðu..

 

Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005