| |
Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir
Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.
Mikill
verkur í öxlum og handleggjum – sautján ára stúlka – fjórir meðferðartímar
-
Samantha fékk
þá greiningu hjá heimilislækninum sínum að grunur væri um klemmda taug. Nálægt hægra herðablaði hennar var upplyft
svæði sem virtist stafa af krampa. Eftir fyrsta meðferðartíma upplifði hún mikinn sársauka en hann hvarf þó innan
tveggja daga. Eftir annan meðferðartímann sagðist hún ekki finna fyrir neinum verk eða vandamáli heldur væri hún
örlítið stirð. Eftir þriðja tímann var stirðleikinn horfinn og Samantha var laus við allan sársauka.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com.
Athugið að hér er ekki
tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með
tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið
hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.
Fara efst á síðu..
|
Verð og greiðslur
Einn
meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli
er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um
þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá
stéttarfélaginu þínu.
Tíðni og fjöldi tíma
Að jafnaði er miðað við að fólk fái
ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili
nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er
að eiga.
Líkaminn læknar sig sjálfur
Hippocrates
sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess.
Allt
sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til
þess að lækna sig sjálfur.
Ég hjálpa þér með því að meðhöndla
líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég
veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast
til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.
TFT-meðferð, Bowen
tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar.
Hverja þessara aðferða
ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns ásamt
mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.
Fara efst á síðu... |
|