| |
Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir
Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.
Kvíði,
martraðir, léleg einbeitning, stöðugar hreyfingar – níu ára stúlka – 5 meðferðartímar
-
Móðir kom með
níu ára gamla dóttur sína í meðferð og kvartaði undan því að stúlkan þjáðist af kvíða gagnvart skólanum, fengi
martraðir, ætti í erfiðleikum með að einbeita sér og gerði undarlegar og endurteknar hreyfingar með höndunum sem
færu í taugarnar á öðrum fjölskyldumeðlimum.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Kvíði,
svefntruflanir og innilokunarkennd – ellefu ára drengur – fjórir meðferðartímar
-
Paula Esson
fékk í meðferð til sín ellefu ára gamlan dreng. Ári áður en hann kom til hennar, um það bil sem hann fór í samræmd
próf í grunnskólanum sínum, hafði hann breyst úr þægum og afslöppuðum ungum manni yfir í það að vera almennt mjög
kvíðinn og órór, þjáðist af svefntruflunum og fékk innilokunarköst. Honum fannst mjög erfitt þegar foreldrar hans
ætluðu að fara eitthvað og fá einhvern til að passa hann á meðan og hafði þá áhyggjur af slysum, sjúkdómum, sýklum
og annars konar áföllum. Skólasamkomur og messur urðu að þrekraun fyrir drenginn og hann varð að sitja nálægt
dyrum til þess að draga úr kvíðatilfinningum sínum. Foreldrar hans höfðu áhyggjur af honum og fengu
heimilislækninn sinn til að vísa á sálfræðing sem ætlunin var að drengurinn færi til.
Paula fékk drenginn fjórum sinnum til sín í meðferðartíma. Eftir fyrsta tímann fann hann fyrir aukinni orku og
losnaði við mikla reiði. Svipað var uppi á teningnum eftir annan tímann. Hann fékk ekkert kvíðakast þessar á
þessum tveimur vikum.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Kvíði vegna
skólans – átta ára stúlka – þrír meðferðartímar
-
Átta ára gömul stúlka
kom í meðferð ásamt móður sinni þar sem hún hafði mikinn kvíða gagnvart skólanum. Eftir þrjá meðferðartíma leið
henni mun betur og verulega hafði dregið úr naglanagi hennar. Hún fann ekki þörf á frekari meðferð og leið mun
betur.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Athugið að hér er ekki
tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með
tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið
hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.
Fara efst á síðu..
|
Verð og greiðslur
Einn
meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli
er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um
þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá
stéttarfélaginu þínu.
Tíðni og fjöldi tíma
Að jafnaði er miðað við að fólk fái
ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili
nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er
að eiga.
Líkaminn læknar sig sjálfur
Hippocrates
sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess.
Allt
sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til
þess að lækna sig sjálfur.
Ég hjálpa þér með því að meðhöndla
líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég
veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast
til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.
TFT-meðferð, Bowen
tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar.
Hverja þessara aðferða
ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns ásamt
mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.
Fara efst á síðu... |
|