Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir

Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.


Astmi og brjóstholssýkingar – átta ára stúlka – þrír meðferðartímar

  • Felicity er átta ára gömul og þjáðist af astma og brjóstholssýkingu. Hún var lítil miðað við aldur og hafði lélega matarlyst. Hún notaði þrenns konar innöndunarúða og þurfti að taka fimm púst tvisvar á dag af einum þeirra, þrjú púst tvisvar á dag af öðrum og þann þriðja þurfti hún að nota á fjögurra klukkustunda fresti. Móðir hennar var í öngum sínum yfir þessu mikla magni af lyfjum sem Felicity þurfti að taka og leitaði því eftir öðrum valkostum. Hún fann Bowen meðferðina. Eftir einn meðferðartíma fylltist Felicity af fjöri og orku, fékk mikla matarlyst og þörfin fyrir úðalyfin tók að minnka örlítið. Þegar hún hafði komið þrisvar sinnum í meðferð var hún laus við alla innöndunarúðana, hafði tekið vaxtarkipp, var full af orku og hafði mikla matarlyst. Í hefðbundinni skoðun eftir þriðja meðferðartímann tók heimilislæknirinn hennar auðveldlega eftir breytingum á Felicity. Augu hennar voru björt og lífleg, hún hafði hækkað og þyngst og andardrátturinn var tær, góður og sterkur. Læknirinn var svo hrifinn af árangrinum að hann óskaði eftir upplýsingum um Bowen meðferðina til þess að geta komið öðrum sjúklingum sínum til hjálpar með því að vísa þeim í slíka meðferð.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Barnaastmi – sex ára drengur - einn meðferðartími

  • Oliver var með astma sem hafði farið versnandi. Móðir hans fór með hann til Bowen tæknis en sagði honum ekki að þessi heimsókn tengdist öndunarvandamálum hans. Þar sem Oliver er að jafnaði þrjóskur kom það móður hans á óvart að hann samþykkti meðferðina og gerði eins og lagt var fyrir hann. Kvöldið eftir þegar hún minnti hann á að fá sér venjulegan skammt úr úðaranum svaraði hann: Ég þarf ekki á honum að halda framar. Hann naut síðan sumarsins án astma, fór meðal annars með bróður sínum á klukkutímalangar fótboltaæfingar og fór í hjólreiðatúr í fjöllum Skotlands í fríinu.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Barnaastmi – tíu ára stúlka – tveir meðferðartímar

  • Drengur sem hafði þjáðst af astma í nokkur ár kom í Bowen meðferð eftir að vandamálið hafði ágerst verulega. Astminn var orðinn illviðráðanlegur og drengurinn þurti að nota steralyf í úðaformi auk þess sem hann var kominn með sýkingu í brjóstholið og eyrun og stöðug nefþrengsli. Drengurinn mældist með peak flow (hámarksútöndun) upp á 150. Daginn eftir fyrsta meðferðartímann hækkaði þessi tala í 215 án erfiðismuna; drengurinn másaði ekkert. Eftir annan meðferðartíma gat hann andað í gegnum nefið. Átta mánuðum síðar sagði móðir hans frá því að astminn hefði ekkert versnað yfir veturinn og að steraskammturinn sem hann andaði að sér hefði verið minnkaður verulega, auk þess sem sýkingarnar voru horfnar.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Kvíði, martraðir, léleg einbeitning, stöðugar hreyfingar – níu ára stúlka – 5 meðferðartímar

  • Móðir kom með níu ára gamla dóttur sína í meðferð og kvartaði undan því að stúlkan þjáðist af kvíða gagnvart skólanum, fengi martraðir, ætti í erfiðleikum með að einbeita sér og gerði undarlegar og endurteknar hreyfingar með höndunum sem færu í taugarnar á öðrum fjölskyldumeðlimum.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Kvíði, svefntruflanir og innilokunarkennd – ellefu ára drengur – fjórir meðferðartímar

  • Paula Esson fékk í meðferð til sín ellefu ára gamlan dreng. Ári áður en hann kom til hennar, um það bil sem hann fór í samræmd próf í grunnskólanum sínum, hafði hann breyst úr þægum og afslöppuðum ungum manni yfir í það að vera almennt mjög kvíðinn og órór, þjáðist af svefntruflunum og fékk innilokunarköst. Honum fannst mjög erfitt þegar foreldrar hans ætluðu að fara eitthvað og fá einhvern til að passa hann á meðan og hafði þá áhyggjur af slysum, sjúkdómum, sýklum og annars konar áföllum. Skólasamkomur og messur urðu að þrekraun fyrir drenginn og hann varð að sitja nálægt dyrum til þess að draga úr kvíðatilfinningum sínum. Foreldrar hans höfðu áhyggjur af honum og fengu heimilislækninn sinn til að vísa á sálfræðing sem ætlunin var að drengurinn færi til.
    Paula fékk drenginn fjórum sinnum til sín í meðferðartíma. Eftir fyrsta tímann fann hann fyrir aukinni orku og losnaði við mikla reiði. Svipað var uppi á teningnum eftir annan tímann. Hann fékk ekkert kvíðakast þessar á þessum tveimur vikum.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Kvíði vegna skólans – átta ára stúlka – þrír meðferðartímar

  • Átta ára gömul stúlka kom í meðferð ásamt móður sinni þar sem hún hafði mikinn kvíða gagnvart skólanum. Eftir þrjá meðferðartíma leið henni mun betur og verulega hafði dregið úr naglanagi hennar. Hún fann ekki þörf á frekari meðferð og leið mun betur.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Miðeyrabólga – fimmtán ára stúlka – fimm meðferðartímar

  • R er fimmtán ára gömul. Sem smábarn þjáðist hún í nokkur ár af vessandi miðeyrabólgu (hljóðholsbólgu – e. glue ear). Afleiðingarnar voru meðal annars skert heyrn og truflun í talþroska hennar. Hún fékk rör í eyrun og vandamálið lagaðist smátt og smátt af sjálfu sér.
    Þegar R var fjórtán ára fékk hún slæmt kvef og vandamálið kom aftur upp öllum til mikilla vonbrigða. Heimilislæknirinn gat aðeins mætl með því að hún færi til sérfræðings ef ekki yrði neinn bati innan sex mánaða. R og móðir hennar voru mjög óánægðar með að þurfa að ganga aftur í gegnum röraísetningu og allt sem henni fylgdi. Þær höfðu líka áhyggjur af þeim áhrifum sem langtímaflug gæti haft – R var á leiðinni í sumarfrí á Barbados.
    R kom fimm sinnum í Bowen meðferð áður en hún flaug til Barbados. Fljótlega fór hún að sofa óslitið alla nótina – í fyrsta sinn á ævinni – og móðir hennar sagði frá því að hún væri hætt að gefa frá sér hryglu- og soghljóðin sem höfðu fylgt henni frá því hún var smábarn. Þær höfðu álitið að þessi hljóð væru henni eðlileg. Þegar R fór í fríið sitt var hún laus við smelli og óþægindi í eyrunum og heyrnin var orðin eðlileg aftur. Hún átti ekki í neinum vandræðum í fluginu og heyrnin var áfram eðlileg eftir fríið og flugið heim. Hún kemur núna í reglulega viðhaldsmeðferð á tveggja mánaða fresti til þess að tryggja að ekki verði afturhvarf til fyrra ástands – og allt er með eðlilegum hætti.

  • Sjá á: www.paulaessonbowen.com


Öndunarerfiðleikar - tveggja ára drengur – tveir meðferðartímar

  • S átti oft í erfiðleikum með að anda þegar hann grét og fell einu sinni í yfirlið þannig að hann þurfti að fá aðstoð öndunartækis. Hann kom þrisvar í meðferð á stuttum tíma. Fyrst notaði Bowen tæknirinn mjúkt leikfang, næst prófaði móðirin að nota snertingar á líkama hans og síðan fékk Bowen tæknirinn að snerta drenginn og gera nokkrar mjúkar hreyfingar sem til þurfti. Ári síðar hafði öndunarvandamálið ekki látið á sér kræla aftur.

  • Sjá á www.paulaessonbowen.com


Athugið að hér er ekki tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.

Fara efst á síðu..

Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir -2005