| |
Astmi og aðrir öndunarerfiðleikar
Axlavandamál - frosin öxl, stirðleiki og fleira
Börn - ýmsir kvillar og sjúkdómar
Kvíði, stress og fleira slíkt
Mígreni
Vefjagigt
Verkir
Ýmsar rannsóknir
Ef þig vantar frekari upplýsingar skaltu ekki hika við að hafa samband við mig í síma eða með tölvupósti.
Astmakast – 17 ára stúlka – einn neyðarmeðferðartími
-
Liðsmaður í unglingalandsliði Englands í körfubolta tók þátt í fjölþættu þolprófi sem notað var til að kanna
líkamlega getu leikmannanna. Gert er ráð fyrir ákveðnum árangri á þessu stigi og þrýstingur félaganna á að ná
tilteknum árangri er gríðarlegur. Stuttu eftir að hún byrjaði þolprófið virtist hún eiga í erfiðleikum með öndun
og það olli áhyggjum. Hún var hins vegar staðráðin í að halda áfram og gerði það á keppnisskapinu einu saman
þangað til hún varð að hætta þegar hún var hreinlega hætt að ná andanum og var að fá kvíðakast sem gerði
aðstæðurnar enn flóknari. Hún fékk strax Bowen neyðarmeðferð gegn astma og náði samstundis eðlilegri öndun.
Hálftíma síðar hélt hún æfingum sínum áfram án frekari vandamála.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Astmi og brjóstholssýkingar – átta ára stúlka
– þrír meðferðartímar
-
Felicity er
átta ára gömul og þjáðist af astma og brjóstholssýkingu. Hún var lítil miðað við aldur og hafði lélega matarlyst.
Hún notaði þrenns konar innöndunarúða og þurfti að taka fimm púst tvisvar á dag af einum þeirra, þrjú púst tvisvar
á dag af öðrum og þann þriðja þurfti hún að nota á fjögurra klukkustunda fresti. Móðir hennar var í öngum sínum
yfir þessu mikla magni af lyfjum sem Felicity þurfti að taka og leitaði því eftir öðrum valkostum. Hún fann Bowen
meðferðina. Eftir einn meðferðartíma fylltist Felicity af fjöri og orku, fékk mikla matarlyst og þörfin fyrir
úðalyfin tók að minnka örlítið. Þegar hún hafði komið þrisvar sinnum í meðferð var hún laus við alla
innöndunarúðana, hafði tekið vaxtarkipp, var full af orku og hafði mikla matarlyst. Í hefðbundinni skoðun eftir
þriðja meðferðartímann tók heimilislæknirinn hennar auðveldlega eftir breytingum á Felicity. Augu hennar voru
björt og lífleg, hún hafði hækkað og þyngst og andardrátturinn var tær, góður og sterkur. Læknirinn var svo
hrifinn af árangrinum að hann óskaði eftir upplýsingum um Bowen meðferðina til þess að geta komið öðrum sjúklingum
sínum til hjálpar með því að vísa þeim í slíka meðferð.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Astmi/stress – unglingspiltur – þrír
meðferðartímar
-
Unglingur, Keith að nafni, var með astma, stöðugan bakverk og hafði í
nokkur ár átt í miklum örðugleikum með að koma sér í gang á morgnana. Hann átti oft í vandræðum með að sofna á
kvöldin en eftir að hafa farið í Bowen meðferð klukkan hálfsjö að kvöldi sofnaði hann og svaf fram á morgun. Eftir
tvo meðferðartíma kvartaði hann undan litlum árangri en hélt þó áfram. Þriðji tíminn kveikti hjá honum löngun til að
drekka mikið af vatni (sem eru algeng viðbrögð) og hann hefur ekki litið til baka síðan. Hann er laus við bakverkinn
og astmann og öllum að óvörum upplifir hann samfellt tímabil þar sem honum finnst einhver tilgangur í því að fara á
fætur og hefja daginn.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Barnaastmi – sex ára drengur - einn meðferðartími
-
Oliver var með
astma sem hafði farið versnandi. Móðir hans fór með hann til Bowen tæknis en sagði honum ekki að þessi heimsókn
tengdist öndunarvandamálum hans. Þar sem Oliver er að jafnaði þrjóskur kom það móður hans á óvart að hann
samþykkti meðferðina og gerði eins og lagt var fyrir hann. Kvöldið eftir þegar hún minnti hann á að fá sér
venjulegan skammt úr úðaranum svaraði hann: Ég þarf ekki á honum að halda framar. Hann naut síðan sumarsins
án astma, fór meðal annars með bróður sínum á klukkutímalangar fótboltaæfingar og fór í hjólreiðatúr í fjöllum
Skotlands í fríinu.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Barnaastmi – tíu ára stúlka – tveir
meðferðartímar
-
Drengur sem hafði þjáðst af astma í nokkur ár kom í Bowen meðferð eftir að vandamálið
hafði ágerst verulega. Astminn var orðinn illviðráðanlegur og drengurinn þurti að nota steralyf í úðaformi auk
þess sem hann var kominn með sýkingu í brjóstholið og eyrun og stöðug nefþrengsli. Drengurinn mældist með peak
flow (hámarksútöndun) upp á 150. Daginn eftir fyrsta meðferðartímann hækkaði þessi tala í 215 án
erfiðismuna; drengurinn másaði ekkert. Eftir annan meðferðartíma gat hann andað í gegnum nefið. Átta mánuðum síðar
sagði móðir hans frá því að astminn hefði ekkert versnað yfir veturinn og að steraskammturinn sem hann andaði að
sér hefði verið minnkaður verulega, auk þess sem sýkingarnar voru horfnar.
-
Sjá á:
www.paulaessonbowen.com
Verkur við djúpa öndun – 29 ára kona – fjórir meðferðartímar
-
Í
tvö ár hafði Michelle þjáðst af verkjum frá baki fram í brjóstkassa þegar hún andaði. Hún hafði áður fyrr átt við
alvarlegan astma að stríða og var verkurinn tengdur við það ástand. Hún hafði reynt ýmiss konar meðferðir sem mælt
hafði verið með af heimilislækninum hennar og hnykkjurum en engin þeirra bar árangur. Eftir þrjá meðferðartíma með
Bowen tækni var verkurinn ekki lengur til staðar og Michelle átti auðveldara með öndun. Þegar hér var komið sagði
hún vandamálið vera tregðu í sogæðafrárennsli niður aðra hlið líkamans, aðallega í hálsinum, sem orsakaði kekki í
brjóstinu þeim megin. Fjórði meðferðartíminn sem hún fór í var aðallega til þess að tryggja að batinn myndi
haldast. Mánuði eftir síðustu heimsóknina var hún laus við öll óþægindi.
-
Sjá á
www.paulaesson.com
Athugið að hér er ekki
tæmandi listi yfir rannsóknir á virkni Bowen tækninnar, aðeins örfá dæmi. Ætlunin er að bæta inn á þessa síðu með
tíð og tíma, hvoru tveggja upplýsingum um rannsóknir sem gerðar hafa verið og reynslusögum þeirra sem fengið
hafa gagn af þessari áhrifaríku meðferð.
Fara efst á síðu.. |
Verð og greiðslur
Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli
er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um
þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá
stéttarfélaginu þínu.
Tíðni og fjöldi tíma
Að jafnaði er miðað við að fólk fái
ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili
nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er
að eiga.
Líkaminn læknar sig sjálfur
Hippocrates
sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess.
Allt
sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til
þess að lækna sig sjálfur.
Ég hjálpa þér með því að meðhöndla
líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég
veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast
til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.
TFT-meðferð, Bowen
tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar.
Hverja þessara aðferða
ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns ásamt
mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.
Fara efst á síðu... |
|