Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn

læknaði sig sjálfur og sá sem veitir

meðferð sé aðeins verkfæri

náttúrunnar til þess.

 

Allt sem ég geri með aðstoð TFT

meðferðar, Bowen tækni eða með

höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

miðar að því að hjálpa líkamanum til

þess að lækna sig sjálfur.

 

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla

líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér

- með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns.

Jóhanna Hildiberg Harðardóttir
 

Velkomin á heimasíðuna mína

Ég er hjúkrunarfræðingur og vinn við að meðhöndla fólk með Bowen tækni meðferð, TFT meðferð og höfuðbeina-   og spjaldhryggsjöfnun.

Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Á þessari síðu er að finna upplýsingar um þessar mismunandi meðferðir sem allar miða að því að bæta heilsuna og hjálpa líkamanum að lækna sig sjálfur.

Einnig er að finna upplýsingar um námskeið, rannsóknir, ýmis gullkorn til að bæta líðan og heilsufar

Frá janúar 2010 hef ég verið með starfsstöð á höfuðborgarsvæðinu fyrir TFT meðferðina ásamt því að halda áfram að vinna á Akureyri eins og ég hef gert síðan 2003.  Vegna þess að ég vinn ekki reglulega í hverri viku í Reykjavík bendi ég á  Bowentæknifélagið fyrir Bowen meðferðir þar.

Ef áhugi er fyrir hendi er ég til í að fara hvert á land sem er til að meðhöndla fólk og/eða halda námskeið.

 

Tímapantanir og upplýsingar eru í síma 824-2777,  í tölvupósti á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it eða undir flipanum "Hafa samband" hér til vinstri.

 

 

Verðskrá

Verðskrá

Bowen tækni og

höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð

Kr. 5000 fyrir fullorðna

Kr. 4000 fyrir börn

2ja til og með 17 ár

Börn að tveggja ára aldri frítt :)

 

TFT meðferð

Kr. 6000 fyrir alla

 

Athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar. Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.

TFT meðferðin skilar oft miklum árangri í aðeins einum tíma.