Jóhanna Harðardóttir

Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777
TFT-meðferð (Thought Field Therapy), Bowen tækni
og höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun á Akureyri

 
  Forsíða TFT-meðferð Bowen Tækni Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun Rannsóknir og reynslusögur Um mig Áhugaverðir vefir  
 
 

BETRI HEILSA - BJARTARI FRAMTÍÐ!

Með það að leiðarljósi að bjóða fjölbreytta þjónustu og margs konar möguleika fyrir skjólstæðinga mína á að bæta heilsu sína, sigrast á vandamálum og yfirvinna hindranir í daglega lífinu býð ég upp á þrjá mismunandi meðferðarmöguleika eða aðferðir til aðstoðar:


TFT-meðferð - Thought Field Therapy

Thought Field Therapy (TFT-meðferð) beinist gegn ýmiss konar sálrænum, andlegum og tilfinningalegum vandamálum og er ætlað að hjálpa fólki að yfirvinna þröskulda eða hindranir sem geta haft verulega hamlandi áhrif á daglegt líf þess. Aðferðin felst í því að ýta undir náttúrulega hæfileika líkamans til að lagfæra vandamál. Við meðferðina er notast við létt högg, bank eða snertingu á tiltekna staði á líkamanum eftir ákveðnu kerfi eða röð eftir því við hvað er fengist hverju sinni.

TFT er árangursrík meðferð gegn flestum neikvæðum tilfinningum eða upplifunum. Meðferðin getur gagnast fólki á öllum aldri allt frá börnum upp í gamalmenni. Meðferðin er sársaukalaus og kallar ekki á endurupplifun eða losun gamalla upplifana.

Ráðist er gegn orsökum vandans þannig að einstaklingnum verður mögulegt að útiloka sínar neikvæðustu upplifanir eða hindranir á stuttum tíma. Innifalið í TFT-meðferðinni er stutt röð sjálfshjálparaðgerða sem hægt er að framkvæma hvar og hvenær sem er.

Nánar um TFT-meðferð
- svör við ýmsum spurningum er að finna hér...

Fara efst á síðu...


Bowen tækni

Bowen tækni er tegund meðferðar sem notuð er á líkamann og kemur af stað heilunarferli, er verkjastillandi og -losandi og endurnýjar orku líkamans. Eitt af einkennum Bowen tækni er að áhrifin eru þægileg, djúp og afslappandi.

Bowen tæknir notar þumla og fingur á ákveðna staði á líkamanum og gerir rúllandi hreyfingar með það að markmiði að trufla boðskipti milli heila, vöðva og bandvefs og að hafa þannig áhrif á orkuflæði innan líkamans. Með meðferðinni er líkaminn hvattur til eigin endurnýjunar og lagfæringar. Engri þvingun né heldur afli er beitt við meðferðina.

Bowen tækni hentar fólki á öllum aldri. Hún er engum hættuleg og ekkert kemur í veg fyrir að hægt sé að beita henni. Hana má nota í neyðartilvikum og við hvaða aðstæður og við hvaða ástandi sem er. Meðferð með Bowen tækni er hægt að nota af öryggi og án áhættu gegn flestum þekktum vandamálum sem steðja að líkamanum.

Ágrip af ævisögu Toms Bowen...

Nánar um meðferð með Bowen tækni:
 – svör við ýmsum spurningum er að finna hér..

Fara efst á síðu...


Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð er óvenjulega mild en jafnframt öflug meðferð sem hefur það meginmarkmið að skapa heilbrigt jafnvægi á öllum sviðum líkamsstarfseminnar og viðhalda því. Sú eða sá sem meðferðina veitir nemur taktinn í höfuðbeina- og spjaldhryggskerfi líkamans og hreyfingar höfuðbeina, finnur stíflur og hindranir og hjálpar líkamanum að losa stíflurnar, fjarlægja hindranir og rétta sig af án þess að þvinga hann á nokkurn hátt.

Meðferðin getur komið nánast hverjum sem er að gagni við nánast hvaða aðstæður sem er. Hún nýtist hverjum og einum í samræmi við þær þarfir sem líkaminn hefur til lagfæringar og betra jafnvægis því líkaminn stýrir meðferðinni sjálfur þegar hann fær ákveðna örvun til þess. Reynslan sýnir að höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun hefur góð áhrif á líkamann og örvar hann til sjálfsheilunar án tillits til þess hvaða sjúkdómur eða kvilli hrjáir hann. Árangurinn er misjafnlega góður eftir einstaklingum, sjúkdómum og vilja líkamans til þess að taka við meðferðinni.

Nánar um höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun:
– svör við ýmsum spurningum er að finna hér...

Fara efst á síðu...

Verð og greiðslur

Einn meðferðartími kostar 4.000 krónur. Þjónustan er því miður ekki niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins en athygli er vakin á að mörg stéttarfélög endurgreiða hluta kostnaðar - ef fyrir liggur tilvísun eða vottorð frá lækni um þörfina fyrir meðferð af þessu tagi (sambærilegt við sjúkranudd og fleira slíkt). Leitaðu upplýsinga hjá stéttarfélaginu þínu.


Tíðni og fjöldi tíma

Að jafnaði er miðað við að fólk fái ekki meðferð oftar en einu sinni í viku á meðferðartímanum. Gera má ráð fyrir að þrír tímar með reglulegu millibili nægi í flestum tilvikum en það er nokkuð einstaklingsbundið og fer einnig eftir því hvaða kvilla eða sjúkdóm við er að eiga.


Líkaminn læknar sig sjálfur

Hippocrates sagði að líkaminn læknaði sig sjálfur og sá sem veitir meðferð sé aðeins verkfæri náttúrunnar til þess. Allt sem ég geri með aðstoð Bowen tækni eða með höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun miðar að því að hjálpa líkamanum til þess að lækna sig sjálfur.

Ég hjálpa þér með því að meðhöndla líkamann með þeirri aðferð sem hentar þér - með tilliti til líkamlegs og andlegs ástands þíns. Meðferðin sem ég veiti er þægileg og afslappandi. Þú getur náð djúpri slökun um leið og líkami þinn fær þá hjálp sem hann þarfnast til endurnæringar og þá aðstoð og hvatningu sem hann þarf til að lækna sig sjálfur.

TFT-meðferð, Bowen tækni og höfuðbeina- og spjald-hryggsjöfnun eru aðferðir sem hafa reynst mjög árangursríkar. Hverja þessara aðferða ég nota hverju sinni fer eftir því við hvaða vandamál er að fást, ástandi og óskum skjólstæðings míns  ásamt mati mínu á aðstæðum og því hver þessara aðferða er líklegust til árangurs.

Fara efst á síðu...

 

Jóhanna Harðardóttir - Bowen tæknir & höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnari. Upplýsingar og tímapantanir í síma 824 2777 og í netfanginu heilsubot@heilsubot.com.

Vefhönnun, textagerð og samræming: Harla - Haraldur Ingólfsson - www.harla.is. Grunnur að texta fenginn á www.cranio.cc og www.bowentaekni.com
© Jóhanna Harðardóttir 2005-2007